Hollvinir færa legudeild geðdeildar húsgögn
27. janúar 2025
Mikilvægt að huga að viðeigandi aðbúnaði og umhverfi innan geðheilbrigðisþjónustunnar.

MYND FV.: Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri rekstrar og klínískrar stoðþjónustu, Inga Margrét Árnadóttir, meðstjórnandi, Jóhann Rúnar Sigurðsson, varaformaður Hollvina, Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk, Hermann Haraldsson, gjaldkeri Hollvina, Bjarni Jónasson, meðstjórnandi Hollvina, Jóhannes G. Bjarnason, formaður Hollvina, Bernard Hendrik Gerritsma, deildarstjóri geðdeildar og Valborg Lúðvíksdóttir, aðstoðardeildarstjóri geðdeildar.
Hollvinir færðu á dögunum legudeild geðdeildar rausnarlegar gjafir í formi húsgagna. Þegar höfðu borist stólar og borð inn í viðtalsherbergin, stofuborð í dagstofu, tveir lazyboystólar í öryggisenda deildarinnar og í gær kom svo einnig stórt sjónvarp fyrir öryggisstofuna.
Undanfarið hafa umfangsmiklar breytingar verið gerðar á legudeildinni með það að markmiði að bæta aðstöðu bæði sjúklinga og starfsfólks. Með tilkomu húsgagnanna frá Hollvinum má segja að umbæturnar hafi náð enn lengra.