Sögulegt magn fíkniefna haldlagt á landamærunum í janúar mánuði
31. janúar 2025


Lögreglan á Suðurnesjum hefur í samstarfi við tollgæsluna á Keflavíkurflugvelli unnið að rannsóknum umfangsmikilla fíkniefnamála í janúar mánuði. Í tengslum við rannsóknir þessara mála hefur lögreglan á Suðurnesjum lagt hald á 47 kg af kannabisefnum 2 kg af kókaíni og 5100 töflur af MDMA svo eitthvað sé nefnt. 23 einstaklingar af 11 þjóðernum sæta gæsluvarðhaldi að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum vegna þessara mála. Það sem af er ári hefur 46 flugfarþegum verið vísað frá landinu við komu þeirra til landsins.