Þessi frétt er meira en árs gömul
Sauðfé á vegum og smalamennskur
23. ágúst 2002


Þegar fer að hausta má búast við að sauðfé komi af afréttum til byggða. Víða eru girðingar með vegum lélegar eða engar í Dölum. Ökumenn eru því beðnir að sýna varúð sérstaklega eftir að skyggja tekur.
Þá fara í hönd smalamennskur og réttir. Ökumenn eru beðnir um að sýna sauðfjárrekstrum, sem í sumum tilfellum þurfa að fara með vegum, tillitsemi og þolinmæði.