Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Rýming á Seyðisfirði

20. janúar 2025

Logo Lögreglan

Mikið hefur snjóað á Austfjörðum í gær og nótt, sérstaklega á Seyðisfirði. Síðla nætur dró úr ofankomu en gert er ráð fyrir að hún aukist eftir hádegi og haldi áfram fram yfir miðnætti. Því hefur verið ákveðið að rýma tvö fjölbýlishús í Bakkahverfi á Seyðisfirði norðan Fjarðarár til viðbótar við rýmingu húsa undir Strandartindi frá í gær. Ofan Bakkahverfis er unnið að byggingu leiðigarðs sem nefndur hefur verið Bakkagarður. Enn vantar upp á að efstu 200 metrar garðsins séu komnir í fulla hæð og eru húsin sem rýmd verða undir þessum hluta hans. Veðurspá gerir ráð fyrir að veðrinu sloti nokkru eftir miðnætti eða seint í kvöld. Gera má ráð fyrir að dragi úr snjóflóðahættu á Austfjörðum í framhaldi af því.

Björgunarsveitarmenn ganga í þau hús sem verða rýmd, að Gilsbakka 1 og Hamrabakka 8, 10 og 12 og veita íbúum leiðbeiningar varðandi atriði sem gott er að hafa í huga við rýmingu. Fjöldahjálparstöð er opin í Herðubreið. Rýming tekur gildi klukkan 14:00.