Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Mikill viðbúnaður lögreglu við Miklubraut í gær

18. desember 2024

Logo Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað síðdegis í gær vegna vopnaðs einstaklings sem sýndi af sér ógnandi hegðun. Lögreglu tókst að yfirbuga viðkomandi en til þess var rafvarnarvopni beitt í fyrsta skipti hér á landi og gekk aðgerðin vel.

Áður hafði vægari aðferðum verið beitt til að draga úr ógnandi hegðun einstaklingsins en þær ekki borið árangur.

Rafvarnarvopn hafa verið í notkun hjá íslensku lögreglunni frá því í byrjun september síðastliðnum. Frá því að það var tekið í notkun hefur það verið dregið úr slíðri eða ræst 29 sinnum í 17 málum að frátöldu máli gærdagsins.

Tölfræði yfir notkun rafvarnarvopna verður gerð opinber með reglubundnum hætti á vef lögreglu.