Mikið um svikasímtöl undanfarið
27. september 2024


Mikið hefur borið á svikasímtölum undanfarið þar sem óprúttnir aðilar reyna að hafa fé af fólki.
Símtölin eru oft látin líta út fyrir að vera frá íslenskum símanúmerum og yfirleitt er töluð enska. Herferðirnar sem eru í gangi núna eru:
Sá sem hringt er í á að eiga inneign (refund) og er boðin aðstoð við að leysa peninginn út
Sá sem hringir biður um aðstoð við rafmyntakaup og lofar þóknun fyrir
Hvert er markmið með svikunum?
Í langflestum tilfellum er reynt að fá þann sem hringt er í til að setja upp forrit á tækinu sem gerir svikurunum kleift að taka stjórn á því. Ef það tekst geta aðilarnir nýtt tækin rétt eins og þeir hefðu þau í höndunum. Dæmi um slík forrit eru:
Any Desk
Team Viewer
Iperius
Hvað geri ég ef ég fæ svikasímtal?
Endaðu símtalið strax
Ef þú skelltir á og fylgdir engum fyrirmælum þarftu ekkert að óttast
Ef þú fylgdir einhverjum fyrirmælum skaltu hiklaust hafa samband við viðskiptabankann þinn