Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Mannslát – upplýsinga leitað

19. september 2024

Logo Lögreglan

Í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti 10 ára stúlku sl. sunnudag, 15. september, leitar embættið eftir myndefni frá vegfarendum sem óku um Krýsuvíkurveg, á milli Vallahverfis í Hafnarfirði og Vigdísarvallavegar, þennan sama dag á milli kl. 13 og 18. Mörg ökutæki eru búin myndavélum og því viðbúið að myndefni frá umræddum vegarkafla á áðurnefndum tíma sé að finna í fórum einhverra. Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um slíkt á netfangið abending@lrh.is og gefa þar upp bæði nafn sitt og símanúmer. Í framhaldinu verður haft samband við viðkomandi.