Þessi frétt er meira en árs gömul
Lögregluvefurinn kominn til Hornafjarðar
21. nóvember 2002


Nú hefur lögreglan á Höfn fengið tengingu við lögregluvefinn, Lögreglan.is, og verður hægt að fletta þar upp ýmsum fréttum af starfssemi, og útdráttum úr dagbók lögreglunnar. Allt sem fólk þarf að gera er að velja -Höfn- í þeim dálkum sem eru í boði á vefnum, og fær það þá nýjustu fréttir.
Fagnar lögreglan á Höfn þessu framtaki, sem er á vegum Ríkislögreglustjóra, og verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út í framtíðinni.
Höfn, 21.02.2002