Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Líkamsárás í Grafarvogi

9. október 2024

Logo Lögreglan

Um klukkan þrjú sl. nótt var lögreglu tilkynnt um líkamsárás í Grafarvogi þar sem hnífi hafði verið beitt. Lögregla fór þegar á vettvang og hafði töluverðan viðbúnað vegna málsins. Tveir voru handteknir og hafa þeir verið yfirheyrðir í dag. Þolandi var með lífshættulega stunguáverka á líkama og var hann fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem gert var að sárum hans. Málsaðilar eru á þrítugs-og fertugsaldri.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.