Hraðakstur í Urriðaholtsstræti í Garðabæ
25. febrúar 2025
Brot 55 ökumanna voru mynduð í Urriðaholtsstræti í Garðabæ í gær.


Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Urriðaholtsstræti í vesturátt, að Lynggötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.
Vöktun lögreglunnar í Urriðaholtsstræti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.