Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi

18. febrúar 2025

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í dag.

Logreglan-umferd-3

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Grundarhverfi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 211 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.