Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Vatnsendavegi í Kópavogi

14. október 2024

Logo Lögreglan

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Vatnsendavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í norðurátt, við Grundarhvarf. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 299 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.