Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Tunguvegi í Mosfellsbæ

31. október 2024

Logo Lögreglan

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Tunguvegi í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Tunguveg í norðurátt, að Kvíslartungu. Á einni klukkustund, í hádeginu, fóru 57 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Tunguvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.