Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Þingvallavegi

17. febrúar 2025

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi á föstudag.

Logreglan-umferd-3

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, á móts við Mosskóga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 62 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.