Hraðakstur á Sundlaugavegi í Reykjavík
13. febrúar 2025
Brot 73 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í dag.


Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í vesturátt, við Laugardalslaug. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 155 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.
Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.