Hraðakstur á Sogavegi í Reykjavík
26. febrúar 2025
Brot 23 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í dag.


Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 36-44. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.
Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.