Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Snorrabraut í Reykjavík

14. nóvember 2024

Logo Lögreglan

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Snorrabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Snorrabraut í norðurátt, á móts við Mánagötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 247 ökutæki þessa akstursleið og því allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar á Snorrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.