Hraðakstur á Skothúsvegi í Reykjavík
18. október 2024


Brot 60 ökumanna voru mynduð á Skothúsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skothúsveg í austurátt, við Bjarkargötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökamanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.
Vöktun lögreglunnar á Skothúsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.