Hraðakstur á Sævarhöfða í Reykjavík
20. febrúar 2025
Brot 59 ökumanna voru mynduð á Sævarhöfða í Reykjavík í dag.


Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sævarhöfða í vesturátt, við Sorpu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 282 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.
Vöktun lögreglunnar á Sævarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.