Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði
11. febrúar 2025
Brot 109 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag.


Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, við álverið í Straumsvík. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 401 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 94.
Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.