Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík
18. febrúar 2025
Brot 780 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá föstudeginum 14. febrúar til þriðjudagsins 18. febrúar.


Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á fjórum sólarhringum fóru 26.820 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 124. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.