Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík
10. febrúar 2025


Brot 413 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá föstudeginum 7. febrúar til mánudagsins 10. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á þremur sólarhringum fóru 16.959 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 112. Ellefu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.