Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík

3. febrúar 2025

Logo Lögreglan

Brot 408 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 30. janúar til mánudagsins 3. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á fjórum sólarhringum fóru 21.102 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 107. Ellefu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.