Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík
27. febrúar 2025
Brot 350 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 24. febrúar til fimmtudagsins 27. febrúar.


Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á þremur sólarhringum fóru 21.510 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tveir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 102. Sjö ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.