Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík

25. febrúar 2025

Brot 494 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá föstudeginum 21. febrúar til mánudagsins 24. febrúar.

Logreglan-umferd-3

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á þremur sólarhringum fóru 18.924 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tveir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 111. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.