Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Grensásvegi í Reykjavík

11. febrúar 2025

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík í gær.

Logreglan-umferd-3

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í suðurátt, við Hvammsgerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 231 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð