Hraðakstur á Gagnvegi í Reykjavík
11. febrúar 2025
Brot 23 ökumanna voru mynduð á Gagnvegi í Reykjavík í dag.


Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gagnveg í vesturátt, að Garðhúsum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 66 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.
Vöktun lögreglunnar á Gagnvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.