Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Bústaðavegi í Reykjavík

26. febrúar 2025

Brot 120 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í dag.

Logreglan-umferd-3

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í austurátt, við Perluna. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 801 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.