Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík

23. janúar 2025

Logo Lögreglan

Brot 71 ökumanns var myndað á Breiðholtsbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, í Víðidal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 552 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.