Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík

28. október 2024

Logo Lögreglan

Brot 82 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá föstudeginum 24. október til mánudagsins 28. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á þremur sólarhringum fóru 23.623 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.