Hraðakstur á Breiðholtsbraut í Reykjavík
7. október 2024


Brot 124 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 2. október til mánudagsins 7. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tæplega fimm sólarhringum fóru 31.481 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.