Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Hraðakstur á Arnarnesvegi í Kópavogi

25. september 2024

Logo Lögreglan

Brot 110 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Salavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 334 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.