Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Grunur um manndráp í sumarhúsi í uppsveitum Árnessýslu

20. apríl 2024

Logo Lögreglan

Skömmu fyrir klukkan 14 í dag barst lögreglu tilkynning um meðvitundarleysi í sumarhúsi í uppsveitum Árnessýslu. Maðurinn var úrskurðaður látinn skömmu eftir komu viðbragðsaðila á vettvang. Hinn látni er karlmaður á fertugsaldri.

Fjórir hafa verið handteknir á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Lögreglan á Suðurlandi fer með forræði rannsóknar í málinu og nýtur stuðnings m.a. frá tæknideild Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn málsins er á frumstigi. Ekki verða veittar frekari upplýsingar að svö stöddu.