Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Fyrirmyndarakstur á Borgavegi í Reykjavík

5. nóvember 2024

Logo Lögreglan

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Borgavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í austurátt, við Spöngina. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða. Hinn brotlegi mældist á 49 en þarna er 40 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.