Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíkniefnamál á Þjóðhátíð 2003.

16. desember 2002

Logo Lögreglan

Þrjú fíkniefnamál komu upp í Vestmannaeyjum um helgina.

Í gærkvöldi fann lögreglan í Vestmannaeyjum með fíkniefnahundinn Tönju sér til aðstoðar, 42 grömm af hassi og áhöld til neyslu og pökkunar á fíkniefnum við húsleit í bænum. Húsráðandinn var handtekinn og færður í fangageymsu. Í framhaldinu voru tveir aðrir handteknir og farið til húsleitar hjá öðrum þeirra. Á heimili hans fundust áhöld til neyslu fíkniefna. Fólkið sem handtekið var er allt á þrítugsaldri, tveir karlmenn og kona. Konunni var sleppt eftir yfirheyrslu, en karlmennirnir sitja enn í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.

Skömmu eftir að rannsókn fyrrgreinds máls hófst kom tæplega tvítugur maður akandi að þar sem lögreglumenn unnu við húsleitina. Við athugun kom í ljós að maður þessi virtist ekki vera í standi til aksturs ökutækis og var hann handtekinn fyrir að stjórna ökutæki undir áhrifum örvandi eða deyfandi efna. Þá eru tengsl hans við fyrrnefnt mál einnig í rannsókn.

Á laugardag var tilkynnt um eld við bílskúr í bænum og voru slökkviliðsmenn í viðbragðsstöðu en lögreglumaður sem kom fyrstur á staðinn hitti þar fyrir tæplega tvítugan mann sem hafði kveikt eld fyrir utan bílskúrinn. Ekki reyndist þörf á slökkviliði, en lögreglumaðurinn fann á staðnum lítilræði af hassi og áhöld til fíkniefnaneyslu.