Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Feðgar saman á námskeiði

21. nóvember 2002

Logo Lögreglan

Í lögreglunni, eins og í öðrum stéttum, kemur að sjálfsögðu fyrir að synir og dætur feti í fótspor feðra sinna eða mæðra. Hitt er aftur á móti sjaldgæfara, a.m.k. í lögreglunni, að feðgar sitji saman á námskeiði til að sérhæfa sig innan starfsstéttarinnar.

Á námskeiði fyrir rannsóknarlögreglumenn sem nú stendur yfir í Lögregluskólanum sitja þeir feðgar Sigursteinn Steinþórsson og Bjarni Sigursteinsson saman og nema fræði rannsóknarlögreglumanna. Þeir eru albúnir að takast á við starf rannsóknarlögreglumannsins, ætla að sitja þriggja vikna námskeið Lögregluskólans og ljúka prófi í lok mánaðarins.