Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Diego er fundinn

26. nóvember 2024

Logo Lögreglan

Diego, einn frægasti köttur landsins, er kominn í leitirnar, en hann var tekinn ófrjálsri hendi í Skeifunni um helgina. Margir hafa leitað að Diego frá þeim tíma, ekki síst Dýrfinna, en það eru félagasamtök sem hjálpa týndum gæludýrum og eigendum þeirra. Ýmsar ábendingar bárust Dýrfinnu meðan á leitinni stóð og það leiddi til þess að lögreglan fann Diego í heimahúsi i morgun. Í framhaldinu var Diego færður á lögreglustöðina á Hverfisgötu og var þar í góðu yfirlæti þangað til honum var komið í hendur eigandans. Varla þarf að taka fram að það voru miklir fagnaðarfundir.

Diego er fundinn-0