Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Lögreglan Forsíða
Lögreglan Forsíða

Lögreglan

Þessi frétt er meira en árs gömul

Banaslys á Vesturlandsvegi

17. janúar 2024

Logo Lögreglan

Alvarlegt umferðarslys á Vesturlandsvegi var tilkynnt 112 neyðarlínu þann 16. janúar klukkan 09:48. Slysið átti sér stað á Vesturlandsvegi skammt frá gatnamótunum við Hvalfjarðarveg. Þar hafði fólksbifreið á suðurleið rekist utan í vöruflutningabifreið sem kom úr gagnstæðri átt og síðan á aðra vöruflutningabifreið sem kom þar á eftir. Ökumaður fólksbifreiðarinnar lést við áreskturinn og farþegi hans slasaðist en ökumenn vöruflutningabifreiðanna voru óslasaðir en voru fluttir til skoðunnar á sjúkrahúsið á Akranesi þar sem þeir síðan fengu áfallahjálp. Lögreglan á Vesturlandi áasamt sjúkra- og slökkviliði fóru á vettvang og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út sem flutti slasaðan farþega til Reykjavíkur. Tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu ásamt rannsóknarnefnd samgönguslysa komu á vettvang en rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi rannsakar slysið.