Alþjóðlegi netöryggisdagurinn
11. febrúar 2025
Mikilvægt er að vita hvaða hegðun er í lagi á netinu og hvaða hegðun er óviðeigandi. Upplýsingar um þetta er víða að finna og upplagt að rifja það aðeins upp í tilefni dagsins, sem er alþjóðlegi netöryggisdagurinn.


Við bendum meðal annars á heimasíðu Neyðarlínunnar þar sem fjallað er um netöryggi, en þar má læra hvernig má bæta öryggi þitt og þinna á netinu.
Hjá SAFT er að finna mikið af fróðleik um netöryggi og samskipti á netinu. Netumferðarskólinn beinir sjónum að því hvernig megi þekkja rangfærslur og falsfréttir og minnir á að STOPPA – HUGSA – ATHUGA til að koma í veg fyrir að við látum blekkjast á netinu og trúum rangfærslum og misvísandi upplýsingum.