Lýsing úrslita forsetakjörs
10. júní 2024
Landskjörstjórn kemur saman til fundar í Þjóðminjasafni Íslands klukkan 10:00 þann 25. júní 2024.
Með vísan til 120. gr. kosningalaga nr. 112/2021 tilkynnist að landskjörstjórn kemur saman til fundar í Þjóðminjasafni Íslands klukkan 10:00 þann 25. júní 2024 til að úrskurða um gildi ágreiningsseðla sem henni hefur borist frá yfirkjörstjórnum kjördæma. Að því loknu mun landskjörstjórn lýsa yfir úrslitum í forsetakjöri er fram fór þann 1. júní síðastliðinn.