Keðjusagarnámskeið á Suðurlandi
21. janúar 2025
Garðyrkjuskólanum, Reykjum í Ölfusi
Garðyrkjuskólinn - FSu býður upp á námskeið í trjáfellingum og meðferð keðjusagar dagana 21.-23. janúar 2025 í Garðyrkjuskólanum að Reykjum í Ölfusi. Hámarksfjöldi þátttakenda er tíu.
Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.
Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir:
fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu.
leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli.
val á trjám til fellingar.
grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða.
Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar:
Keðjusög tekin í sundur.
Einföld bilanaleit í söginni og hefðbundið viðhaldi.
Þrif sagar.
Brýning keðju.
Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.
Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm eru beðnir að taka búnað sinn með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnaðinn lánaðan á námskeiðinu.
Kennari
: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).
Tími
: (3x) - þriðjudag 21. janúar kl. 9-17.30. - miðvikudag 22. janúar kl. 9-17.30. - fimmtudag 23. janúar kl. 9-16.
Staður
: Í Garðyrkjuskólanum, Reykjum í Ölfusi (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.
Verð
: 79.000 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).
Skráning:
Í netfangið
Skráningarfrestur er til 14. janúar 2025.