Hljóðbókasafnið hlaut Samfélagslampann 2019
23. ágúst 2019
Hljóðbókasafn Íslands hlaut nýlega Samfélagslampa Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi.
Það var forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sem afhenti lampann í 80 ára afmælishófi Blindrafélagsins. Viðurkenninguna hlýtur safnið fyrir „ómetanlega þjónustu í áratugi við að opna aðgang blindra og sjónskertra einstaklinga að lesefni.“ Tilgangurinn með veitingu Samfélagslampans er vekja athygli á fyrirtækjum, stofnunum og/eða tilteknum aðgerðum eða verkefnum, sem með einum eða öðrum hætti hafa stuðlað að auknu sjálfstæði blindra og sjónskertra einstaklinga.
Samfélagslampi Blindrafélagsins er einstakur gripur, handsmíðaður af Sigmari Ó Maríussyni, gullsmíðameistara. Um er að ræða upphleypta lágmynd úr silfri sem sýnir lampann úr merki Blindrafélagsins. Lampinn er festur á sagaða og slípaða steinflís úr skagfirsku blágrýti. Steinflísin stendur á tveimur járnpinnum á blágrýtisfæti. Á fætinum er síðan silfurskjöldur með áletrun um verkið og tilefni þess.