HBS skrifar undir samstarfssamning við SÍM
25. júní 2020
Hljóðbókasafn Íslands skrifaði í dag undir samning milli SÍM (Samstarf um íslenska máltækni) og Almannaróms (miðstöðvar um máltækni).
Að Almannarómi standa háskóla- og rannsóknastofnanir, fyrirtæki og félagasamtök. Meginhlutverk Almannaróms er að tryggja að íslenska standi jafnfætis öðrum tungumálum í hinu stafræna umhverfi. Safnið er þar með orðið formlegur hluti af þessu mikilvæga samstarfi.
Almannarómur er sjálfseignarstofnun um eflingu máltæknilausna fyrir íslensku og vinnur að því að tryggja að íslenskan standi jafnfætis öðrum tungumálum í tækniheiminum. Í máltækni mætast tölvutækni og tungumál í þeim hagnýta tilgangi að þróa kerfi sem geta unnið með og skilið náttúruleg tungumál. Máltækniáætlun fyrir íslensku hefur meðal annars það markmið að þróa talgreini, talgervil, vélrænar þýðingar og sjálfvirkar villuleiðréttingar fyrir íslensku.