95% ánægja með þjónustu Hljóðbókasafns Íslands
16. mars 2021
Hljóðbókasafn Íslands fékk bestu útkomuna í samræmdri þjónustukönnun sem birt var á vef Stjórnarráðsins þann 5. mars sl.
Spurt var um heildaránægju með þjónustuna, samskipti við stofnun, áreiðanleika upplýsinga, afgreiðsluhraða erinda og stafræna þjónustu.
Safnið var hæst af þeim 33 ríkisstofnunum sem voru kannaðar að þessu sinni en 95% notenda safnsins voru ánægðir með þjónustuna í heild, 65% mjög ánægðir og 30% frekar ánægðir. Hljóðbókasafnið fékk 4,6 stig af 5 mögulegum þegar spurt var um heildaránægju en meðaltal stiga hjá öðrum stofnunum var 3,8. Svarhlutfall fyrir einstakar stofnanir í könnuninni var mishátt en nægilega mörg svör þurfti til að hægt væri að birta niðurstöður.