Prentað þann 23. nóv. 2024
1246/2016
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 170/2009, um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.
1. gr.
Í stað "14.734 kr." í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 15.839 kr.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 14. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2017. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1232/2015, um breytingu á reglugerð nr. 170/2009, um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.
Velferðarráðuneytinu, 23. desember 2016.
Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.