Ótímabundinn dvalarréttur aðstandenda EES/EFTA-borgara
Nánasti aðstandandi EES/EFTA-borgara öðlast rétt til ótímabundinnar dvalar á Íslandi eftir fimm ára samfellda löglega dvöl með dvalarskírteini sem aðstandandi EES/EFTA-borgara.
Réttur til ótímabundinnar dvalar fellur niður dveljist viðkomandi utan landsins lengur en í tvö ár samfellt.
Samfelld dvöl
Eftirfarandi telst ekki rof á samfelldri dvöl:
dvöl erlendis í skemmri tíma en samtals sex mánuði á ári,
dvöl erlendis vegna herþjónustu eða
dvöl í eitt skipti að hámarki í eitt ár af ríkum ástæðum, svo sem vegna meðgöngu, fæðingar, alvarlegra veikinda, náms eða starfsnáms eða starfa sem viðkomandi er sendur til í öðru landi.
Undantekningar frá fimm ára reglunni
Í undantekningar tilvikum getur aðstandandi EES/EFTA-borgara öðlast rétt til ótímabundinnar dvalar eftir skemmri tíma en fimm ár.
Það getur átt við ef EES/EFTA-borgarinn, sem hann leiðir rétt sinn af, hefur sjálfur öðlast rétt til ótímabundinnar dvalar eftir skemmri en fimm ára búsetu, sbr. 3. málsgrein 87. greinar laga um útlendinga, eða við andlát EES/EFTA-borgarans, sbr. 6. málsgrein 87. greinar laga um útlendinga.
Umsókn
Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.
Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar eða með því að senda umsókn í bréfpósti. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.
Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland
Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.
Kostnaður
Fyrir skráningu á rétti til ótímabundinnar dvalar þarf að greiða 8.000 krónur.
Útgefin dvalarskírteini hafa fimm ára gildistíma. Ekki þarf að sækja um aftur þegar kortið rennur út heldur aðeins að panta tíma í myndatöku og greiða 8.000 kr. fyrir nýtt kort.
Fylgigögn
Til skráningar á rétti til ótímabundinnar dvalar þarf að leggja fram umsókn um dvalarskírteini og ljósrit af síðum vegabréfs með persónuupplýsingum og undirskrift.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun