Með nýsköpunarstyrk geta fyrirtæki búið til nýtt starf við nýsköpunar- og þróunarverkefni fyrir einstakling á atvinnuleysisskrá. Ráðið er til 6 mánaða með möguleika á framlengingu í 12 mánuði.
Það verður að vera veruleg nýsköpun og þróun í því verkefni sem starfskraftur er ráðinn til. Verkefnastjóri hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti metur umsóknir um styrki.
Nýsköpunarstyrkur þarf að fela í sér aukningu á starfsmannafjölda fyrirtækisins. Starfskrafturinn er ráðinn sem launþegi.
Að minnsta kosti einn starfsmaður verður að vera á launaskrá fyrirtækis áður en sótt er um.
Einstaklingurinn sem er ráðinn verður að vera með samþykkta umsókn um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun.
Fyrirtæki verður að vera í skilum hvað varðar launatengd gjöld og opinber gjöld. Dæmi eru iðgjöld og mótframlag í lífeyrissjóð, stéttarfélagsgjöld og tryggingagjald.
Almennt er gert ráð fyrir 100% starfshlutfalli.
Upphæð nýsköpunarstyrks er 390.084 krónur er miðað við 100% starf.
Þetta eru grunnatvinnuleysisbætur, 349.851 krónur, ásamt 11,5% mótframlagi í lífeyrissjóð.
Umsóknir fara í gegnum matsferli hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Ráðuneytið svarar umsækjanda varðandi niðurstöðu matsins í tölvupósti og Vinnumálastofnun fær afrit af svarinu.
Ef svarið er jákvætt skráir atvinnurekandi starfið sem var samþykkt. samband við Vinnumálastofnun og skráir starfið sem var samþykkt. Það er gert á Mínum síðum atvinnurekenda. Smelltu hér til að nálgast leiðbeiningar.
Vinnumálastofnun getur veitt aðstoð við leit að starfsmanni sem hefur þá menntun, reynslu eða hæfni sem leitað er eftir. Einnig er hægt að senda kennitölu atvinnuleitenda til að kanna hvort viðkomandi uppfylli skilyrði nýsköpunarstyrks.
Skila þarf inn afriti af undirrituðum ráðningarsamningi milli atvinnurekanda og starfsmanns sem uppfyllir ákvæði viðeigandi kjarasamninga.
Lengd samnings
Hámarkslengd samnings er 6 mánuðir. Að 5 mánuðum liðnum getur fyrirtæki sótt um framlengingu til 6 mánaða í viðbót. Þá þarf að skila áfangaskýrslu
Eyðublað fyrir áfangaskýrslu
Atvinnurekandi sækir um greiðslu styrks á Mínum síðum atvinnurekenda.
Greiðslur er hægt að innheimta mánaðarlega eða í einu lagi í lok tímabils.
Með hverri umsókn þarf að fylgja launaseðill fyrir viðkomandi mánuð sem sótt er um.
Skilyrði fyrir greiðslu er að búið sé að greiða laun og standa skil á launatengdum gjöldum til Skattsins.
Þegar verkefninu lýkur skilar atvinnurekandi lokaskýrslu um verkefnið, þar sem fram kemur hvort og þá hvernig markmið náðust og hvort viðkomandi starfskraftur hafi verið ráðinn ótímabundið.
Samningur um nýsköpunarstyrk og greiðslur vegna hans falla úr gildi ef viðkomandi atvinnuleitandi hættir störfum hjá atvinnurekanda af einhverjum orsökum á gildistíma samningsins.
Tímabil ráðningarstyrks hjá atvinnuleitanda telst ekki til ávinnslutímabils atvinnuleysisbóta.
Atvinnuleitandi er afskráður af atvinnuleysisskrá á meðan á ráðningartímabili stendur.