10. júní 2024
10. júní 2024
Skipti á aflamarki - tilboð óskast
Skiptimarkaðurinn opnar mánudaginn 10. júní 2024 kl. 12:00. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 12:00 þriðjudaginn 18. júní 2024.
Fiskistofa auglýsir eftir tilboðum í neðangreint aflamark í tilgreindri tegund í skiptum fyrir aflamark í þorski. Samkvæmt 4. grein reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024.
Fisktegund | Þorskígildisstuðlar | Magn í boði |
Makríll | 0,16 | 6.465.947 kíló |
Rækja við Snæfellsnes | 0,8 | 19.875 kíló |
Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 473,34 kr/kg.
Tilboð er sent í gegnum nýtt tilboðsmarkaðskerfi Fiskistofu. Prófkúruhafar eða einstaklingar sem veitt hefur verið umboð, sjá leiðbeiningar, geta lagt inn tilboð á tilboðsmarkaði á notendavænan og einfaldan hátt.