Að verða aðili að rammasamningunum sem seljandi
Skref til að taka þátt í rammasamningum sem seljandi.
Seljendur skoða stöðu rammasamninga á www.midlaegirsamningar.is og skoða rammasamningsútboð sem eru í gangi á www.utbodsvefur.is.
Seljendur finna rammasamningsútboð sem áhugi er á og ná í útboðsgögnin til yfirferðar.
Seljendur fara eftir almennu tilboðsferli Fjársýslunnar til að taka þátt og verður að bjóðanda.
Seljandi verður að birgja
Þegar seljandi hefur verið valinn inn í rammasamning eftir rammasamningsútboði eiga þeir að:
skrá inn samningskjör rammasamnings inn í sitt viðskiptakerfi á þær kennitölur stofnanna sem eru hluti að samning.
ef ríkisstofnun hefur samband við seljanda þá ber honum að upplýsa kaupanda um þau rammasamningskjör sem honum stendur til boða.
Birgjar geta einnig auglýst sína þjónustu með því að hafa samband við opinbera kaupendur og þannig vakið athygli á þeim kjörum sem þeim stendur til boða hjá birgja.
Veltuskil
Í útboðsgögnum hvers rammasamnings er gerð grein fyrir skilum á veltutölum. Aðeins skal skila inn veltu af umsaminni vöru eða þjónustu og skiptir ekki máli hvort um bein kaup sé að ræða eða eftir örútboð. Gefin er upp í veltutölum ein heildartala án vsk. á kennitölu.

Þjónustuaðili
Fjársýslan Innkaup